Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Hér mun fara fram efnisleg umræða um afgreiðslu efh.- og viðskn. Mín athugasemd laut að því á hvern hátt hv. þm. mælti fyrir nál. og ég verð að segja alveg eins og er að það var bara allt annað að heyra í hv. þm. þegar hann kom hér upp í annað sinn.