Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég styð frv. og tel að um sé að ræða mikilsvert efni. Ég harma að óskum okkar um skilyrðislausa beitingu umhverfismats á framkvæmdirnar var hafnað en ég vona engu að síður að málafylgja okkar verði til þess að menn nái áttum og tryggi að umhverfissjónarmiðum verði fylgt í einu og öllu við þær framkvæmdir sem er verið að ákveða.