Verðbréfasjóðir

Þriðjudaginn 09. febrúar 1999, kl. 14:08:59 (3372)

1999-02-09 14:08:59# 123. lþ. 61.7 fundur 224. mál: #A verðbréfasjóðir# (innlendir sjóðir) frv., viðskrh. (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 123. lþ.

[14:08]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Áður en ég fullyrti það í þessum ræðustóli áðan hvernig hv. þm. hefði greitt atkvæði, þá leitaði ég álits hjá skrifstofu þingsins og fékk þær upplýsingar að hv. þm. hefði greitt atkvæði með frv. Það munu ekki hafa verið réttar upplýsingar því hv. þm. mun hafa setið hjá og var meiningin alls ekki sú af minni hálfu að hafa hv. þm. fyrir rangri sök í þessum efnum. Ég vildi út af umræðum áðan ganga úr skugga um það hvernig hv. þm. hefði greitt atkvæði og gerði það með þessum hætti.