Flm. (Rannveig Guðmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka þau góðu viðbrögð og ágætar ábendingar sem hafa komið fram í umræðunni. Þessi tillaga var lögð fram í byrjun nóvember og því miður er hún að koma seint á dagskrá en það er enn þá tækifæri til fyrir Alþingi að afgreiða tillöguna og hún er þess eðlis að það á að vera hægt og ég hvet til þess að það gerist.
Herra forseti. Ég þakka umræðuna og legg til að málinu verði vísað til félmn. og síðari umr.