Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti getur því miður ekki upplýst hvaða málum kunni að verða dreift síðar í dag. Forseti var að kanna það rétt áðan en getur ekki upplýst það á þessari stundu en vonast til að einhverjum frv. verði dreift áður en þessum fundi lýkur.
Forseti mun að sjálfsögðu ræða þessi mál við formenn þingflokka stjórnarflokkanna svo og ráðherra og deilir áhyggjum með þeim sem hér hafa talað, að það er slæmt að stjórnarfrv. komi mjög seint fram.