Sverrir Hermannsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svör hans, sérstaklega um hina hlutlausu úttekt. Þetta er skýrsla ríkisstjórnarinnar í heild og það segir sig sjálft. En þá er hins vegar alveg óhjákvæmilegt að líta svo á að hæstv. forsrh. hafi tekið allmikla sveigju frá sinni fyrri afstöðu um að þetta mál sé ekki einu sinni til umræðu.