Frsm. 1. minni hluta iðnn. (Árni Steinar Jóhannsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Hér hefur hv. formaður iðnn. látið stór orð falla um einn af æðstu embættismönnum ríkisins. Mér finnst mjög alvarlegt að gera slíkt úr ræðustóli og spyr: Hvers vegna í ósköpunum, ef hann telur tilefni til svona ásakana, er ekki iðnn. kölluð saman og fjallað um málið á þeim grundvelli?