Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Vegna orða formanns landbn. vil ég árétta að tillaga mín í málinu er að þetta frv. fari til umfjöllunar í landbn. Hún er ekki um neitt annað. Ég held þvert á móti að það sé afar óráðlegt að gefa sér fyrir fram niðurstöðu í þessu máli að óathuguðu máli og án þinglegrar meðferðar.