Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég hef gert mér grein fyrir því í dag að hæstv. forseti þingsins, Halldór Blöndal, 1. þm. Norðurl. e., var hér að störfum til klukkan sex síðustu nótt og það kom fram í störfum hv. þm. sem forseta hér í dag. Nú vantar klukkuna fimm mínútur í tvö og ég virði það alveg að menn séu orðnir þreyttir. Ég verð að segja alveg eins og er að þetta andsvar er ekki svaravert.