133. löggjafarþing — 60. fundur, 25. jan. 2007.
umræða um málefni útlendinga.
Hæstv. forseti. Hæstv. forseti fann að ummælum mínum hér áðan og taldi þau ekki falla undir þennan dagskrárlið, um fundarstjórn forseta. Þetta má að vissu leyti til sanns vegar færa (Gripið fram í: Nú?) en ég beini því til hæstv. forseta að hann gæti samræmis í dómum sínum og aðfinnslum í garð þingmanna.