135. löggjafarþing — 112. fundur, 28. maí 2008.
umfjöllun heilbrigðisnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Forseti vill tilkynna að með bréfi dagsettu 6. maí 2008 hefur forseti óskað eftir því við heilbrigðisnefnd að hún fjalli um greinargerð Ríkisendurskoðunar um svonefnda RAI-skráningu hjá hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir árið 2006 í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar sl.