138. löggjafarþing — 106. fundur, 15. apr. 2010.
fríverslunarsamningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Kólumbíu o.fl.
580. mál
Frú forseti. Ég ætla að heita á hæstv. ráðherra að ef Ísland fær einhverjar undanþágur í væntanlegum samningi, skal ég fara með honum í fundaferð hringinn í kringum landið til að ræða þann samning. Ég ætla að vona að hann taki þeirri bón minni, en það verða að sjálfsögðu að vera undanþágur.