Ferill 664. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1131  —  664. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988,
með síðari breytingum (útleiga veiðiréttar og sala veiðileyfa).


Flm.: Jón Þór Ólafsson, Björt Ólafsdóttir,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Össur Skarphéðinsson.


1. gr.

    Við 8. tölul. 3. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er útleiga veiðiréttar skattskyld, svo og sala veiðileyfa þegar um er að ræða fast gjald, óháð veiðifeng.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Til ársloka 2017 skal virðisaukaskattur af útleigu veiðiréttar og sölu veiðileyfa þegar um er að ræða fast gjald, óháð veiðifeng, sbr. 8. tölul. 3. mgr. 2. gr., vera 11%.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016.

Greinargerð.

    Lagt er til að virðisaukaskattsskyld verði útleiga veiðiréttar og sala veiðileyfa sem ekki er bundin aflamagni á þann hátt að líta verði á hana sem virðisaukaskattsskylda vörusölu. Skatthlutfall verður fyrstu tvö árin eftir gildistöku samkvæmt neðra þrepi 2. mgr. 14. gr. laga um virðisaukaskatt. Þar eftir verður það samkvæmt efra þrepi 1. mgr. 14. gr. laganna. Með því verður undanþágan sem stangveiði hefur notið frá því að greiða virðisaukaskatt afnumin.
    Tekjurnar af sölu lax- og silungaveiðileyfa eru áætlaðir tæplega 2 milljarðar kr. Fyrstu fjögur árin sem undanþágurnar verða ekki í gildi munu skila ríkissjóði allt að 1,4 milljörðum kr. og tæpum hálfum milljarði króna á ári þar á eftir. Ekki er gert ráð fyrir að afnám skattundanþágunnar minnki skattstofninn verulega.
    Fyrr á árinu áætlaði innanríkisráðuneytið í svari til spyr.is að þjóðaratkvæðagreiðsla mundi kosta rúmlega 300 millj. kr. Í svari frá skrifstofu Alþingis til vefsins kemur fram að kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs í október 2012, þ.m.t. kynningarefni, nam um 281,2 millj. kr.
    Með því að fella úr gildi undanþágu virðisaukaskatts á tveggja milljarða króna skattstofni munu árlegar þjóðaratkvæðagreiðslur ekki leiða til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð.