140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

dómstólar.

683. mál
[18:20]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Skemmst er frá því að segja að um þetta mál var samstaða í nefndinni. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá dómstólaráði og Félagi löglærðra aðstoðarmanna dómara.

Ég held að þetta sé mjög gott mál og til bóta en hér stendur, með leyfi forseta:

„Í 17. gr. laga um dómstóla er kveðið á um að til aðstoðar héraðsdómurum megi ráða lögfræðinga sem starfi þó ekki lengur en í fimm ár við sama dómstól. Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði þetta verði gert fyllra og störf aðstoðarmanna afmörkuð með því að kveða á um að dómstjóri geti falið aðstoðarmönnum önnur dómstörf en þau að fara með og leysa efnislega úr einkamálum þar sem vörnum er haldið uppi og sakamálum frá því að þau koma til aðalmeðferðar. Þá er veitt heimild til að endurnýja einu sinni ráðningu aðstoðarmanns dómara.“

Þetta er talið verulega til hagsbóta fyrir störf dómstólanna og nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta rita auk mín hv. þingmenn Þráinn Bertelsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Siv Friðleifsdóttir og Birgitta Jónsdóttir.

Skúli Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Ég legg til þegar þetta mál hefur verið afgreitt gangi það til 3. umr. og þurfi ekki að fara til nefndar aftur.