141. löggjafarþing — 21. fundur, 18. okt. 2012.
mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa.
Eygló Harðardóttir verður aðalmaður og Birkir Jón Jónsson verður varamaður í efnahags- og viðskiptanefnd. Birkir Jón Jónsson tekur sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Eyglóar Harðardóttur. Þessar breytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.