143. löggjafarþing — 26. fundur, 20. nóv. 2013.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta?
Hv. þm. Helgi Hjörvar hefur óskað að taka til máls um atkvæðagreiðsluna.