144. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[17:56]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur þær upplýsingar að hæstv. heilbrigðisráðherra muni vera væntanlegur eða hyggist reyna að koma til umræðunnar um leið og hann losnar af fundi. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær það verður. Forseti mun gera þær breytingar á mælendaskránni að þeir sem voru að því komnir að halda sína seinni ræðu færist neðar á skránni þannig að þeir eigi enn eftir rétt í umræðunni til orðaskipta við hæstv. ráðherra þá hann vonandi og nær hann kemur til umræðunnar.