144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:33]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 444, um vopnaeign og vopnaburð lögreglunnar, frá Katrínu Jakobsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 446, um kostnað Landsvirkjunar og umfang vinnu í tengslum við mögulega lagningu sæstrengs, frá Ásmundi Friðrikssyni.

Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 337, um aukin framlög til NATO.