144. löggjafarþing — 47. fundur, 12. des. 2014.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill upplýsa að hann hyggst einnig taka núna fyrir atkvæðagreiðslur um 9. og 10. dagskrárliði. Síðan er ætlunin að setja nýjan fund og veita afbrigði fyrir nokkrum málum á þeim fundi og gera svo hlé í hálfa klukkustund. Ekki verða fleiri atkvæðagreiðslur í dag að loknum atkvæðagreiðslunum um afbrigðin.