Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 588, 139. löggjafarþing 97. mál: almenn hegningarlög (samningur Sameinuðu þjóðanna um spillingu).
Lög nr. 143 22. desember 2010.

Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum (samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu).


1. gr.

     Við 6. gr. laganna bætist nýr töluliður er orðast svo: Fyrir háttsemi sem greinir í samningi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu frá 31. október 2003.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 17. desember 2010.