Einar Olgeirsson

Einar Olgeirsson

Þingseta

Alþingismaður Reykvíkinga 1937–1967 (Kommúnistaflokkurinn, Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkur, Alþýðubandalag).

Forseti neðri deildar 1956–1959.

Formaður þingflokks Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1939–1956 og þingflokks Alþýðubandalagsins 1956– 1962.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Akureyri 14. ágúst 1902, dáinn 3. febrúar 1993. Foreldrar: Olgeir Júlíusson (fæddur 12. október 1871, dáinn 6. september 1943) bakari þar, afabróðir Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns, og kona hans Solveig Gísladóttir (fædd 4. nóvember 1876, dáin 24. september 1960) húsmóðir, bróðurdóttir Snorra Pálssonar alþingismanns. Maki (20. september 1927) Sigríður Þorvarðsdóttir (fædd 31. júlí 1903, dáin 4. desember 1994) húsmóðir. Foreldrar: Þorvarður Þorvarðarson og 1. kona hans Sigríður Jónsdóttir. Börn: Solveig Kristín (1939), Ólafur Rafn (1943).

Stúdentspróf MR 1921. Lagði stund á þýskar og enskar bókmenntir og tungu við Friedrich-Wilhelm Universität í Berlín 1921–1924, en lauk ekki prófi.

Kennari við framhaldsdeild Gagnfræðaskólans á Akureyri 1924–1928. Forstjóri Síldareinkasölu Íslands 1928–1931. Forstjóri Íslensk-rússneska verslunarfélagsins hf. 1931–1935. Ritstjóri 1935–1946. Stundaði síðan ritstörf áfram og kenndi í flokksskólum og leshringum.

Formaður Verkamannafélags Akureyrar 1928–1931. Í bæjarstjórn Akureyrar 1929–1931. Tekinn af breska setuliðinu í apríl 1941 og fluttur til Lundúna, en var sleppt úr haldi um sumarið. Kosinn 1942 í milliþinganefnd um stjórnarskrármálið. Í útvarpsráði 1943–1947 og í landsbankanefnd 1944–1955. Í skilnaðarnefnd 1944. Skipaður 1944 í þjóðhátíðarnefnd lýðveldisstofnunar. Í nýbyggingarráði 1944–1947. Í raforkuráði, síðar orkuráði 1949–1953 og síðan 1958–1975. Kosinn 1955 í atvinnumálanefnd. Í Norðurlandaráði 1957–1963, í bankaráði Landsbankans 1957–1981, formaður þess 1973–1976 og í Rannsóknaráði ríkisins 1965–1967. Formaður Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1939–1968. Sat allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 1967.

Alþingismaður Reykvíkinga 1937–1967 (Kommúnistaflokkurinn, Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkur, Alþýðubandalag).

Forseti neðri deildar 1956–1959.

Formaður þingflokks Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1939–1956 og þingflokks Alþýðubandalagsins 1956– 1962.

Samdi ritin: Rousseau. Ættasamfélag og ríkisvald í þjóðveldi Íslendinga. Vort land er í dögun. Sósíalistaflokkurinn. Saga hans og meginstefna. Hann skrifaði fleiri bækur auk margra greina í tímaritum og blöðum. — Jón Guðnason skráði eftir honum: Ísland í skugga heimsvaldastefnunnar (1980) og Kraftaverk einnar kynslóðar (1983).

Ritstjóri: Réttur. Tímarit um félagsmál og mannréttindi (1926–1941 og 1946–1993). Verkamaðurinn (1931–1933). Verklýðsblaðið (1935–1936). Þjóðviljinn (1936–1946). Nýtt dagblað (1941–1942).

Æviágripi síðast breytt 23. september 2019.

Áskriftir