Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Árni Páll Árnason
4. þm. SV, Sf, ÁPÁ
Árni Páll Árnason

   
Atli Gíslason

Atli Gíslason

      F. í Reykjavík 12. ágúst 1947. For.: Gísli Guðmundsson (f. 30. okt. 1907, d. 29. des. 1989) leiðsögumaður og kennari og Ingibjörg Jónsdóttir (f. 24. apríl 1915, d. 9. jan. 1997) húsmæðraskólakennari, húsmóðir og verkakona. M. 1. Unnur Jónsdóttir (f. 4. febr. 1949) leikskólastjóri. Þau skildu. For.: Jón Eiríkur Gunnarsson og Þorbjörg Guðmundsdóttir. M. 2. Rannveig Sigurðardóttir (f. 28. júní 1953) skrifstofumaður. For.: Sigurður Hallgrímsson og Guðrún Karlsdóttir. Synir Atla og Unnar: Jón Bjarni (1971), Gísli Hrafn (1974), Friðrik (1975). Fósturdóttir, dóttir Rannveigar: Guðrún Erna Levy (1991).
      Stúdentspróf MR 1968. Lögfræðipróf HÍ 1974. Framhaldsnám í eignar- og þjóðlendurétti í Ósló 1974-1975. Hdl. 1979. Framhaldsnám í vinnurétti í Kaupmannahöfn 1981-1982. Hrl. 1989.
      Við garðyrkjustörf með námi 1963-1974. Á síld sumarið 1968. Lögfræðingur hjá skattrannsóknardeild ríkisskattstjóra 1976-1980. Sjálfstætt starfandi lögmaður 1980-2007. Lögmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, síðar Eflingar – stéttarfélags, síðan 1982. Settur saksóknari 1989-1992 í ýmsum efnahagsbrotamálum og lögreglustjóri 1997 vegna rannsóknar á meðferð lögreglu á málum tengdum fíkniefnasala. Setudómari í Félagsdómi og í Hæstarétti. Nefndarmaður í gjafsóknarnefnd, refsiréttarnefnd og úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla 1992-2000.
      Formaður Sambands íslenskra námsmanna erlendis 1975-1976. Rak ókeypis lögfræðiaðstoð 1976-1977. Lögfræðilegur ráðgjafi lögfræðiaðstoðar Orators ásamt fleirum síðan 1981. Í miðstjórn Samtaka herstöðvaandstæðinga 1983-1991. Í Þingvallanefnd 2009-2010.

      Alþm. Suðurk. 2007-2013 (Vg., Ufl.).
      Vþm. Reykv. n. febr.-mars 2004, mars 2005, apríl-maí 2006 (Vg.)
      Allsherjarnefnd 2007-2009, 2009-2010 og 2010-2013, kjörbréfanefnd 2007-2009, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2007-2011 (form. 2009-2011), sérnefnd um stjórnarskrármál 2007 og 2009 (fyrri), 2009 (seinni), félags- og tryggingamálanefnd 2009, umhverfisnefnd 2009, iðnaðarnefnd 2009-2010, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010 (form.), viðskiptanefnd 2010-2011, saksóknarnefnd 2010-2012, umhverfis- og samgöngunefnd 2011-2013.
      Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2009-2011.


Síðast breytt 08.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Hagsmunaskráning




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.