Ferill 449. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 773 — 449. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar,
lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar).
(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
a. Í stað orðsins „biskupsembættis“ kemur: biskupsþjónustu.
b. Í stað orðsins „prestsembætti“ kemur: prestsþjónustu.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
a. Í stað orðanna „embætti sínu“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: biskupsþjónustu sinni.
b. 2. mgr. orðast svo:
Nú fellur biskup Íslands frá eða lætur af biskupsþjónustu sinni og skal þá sá vígslubiskup sem eldri er að biskupsvígslu gegna þjónustu hans uns biskupskjör hefur farið fram og nýr biskup Íslands hefur tekið við.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
11. gr.
Biskup Íslands ræður í starf sóknarprests sem og í önnur prestsstörf, sbr. 35., 44. og 45. gr.
12. gr.
a. Í stað orðanna „skipunar eða setningar í prestsembætti“ í 1. mgr. kemur: tímabundinnar eða ótímabundinnar ráðningar í prestsstarf.
b. Í stað tilvísunarinnar „6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins“ í 3. mgr. kemur: sem starfsreglur kirkjuþings kunna að mæla fyrir um.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
a. Í stað orðanna „hlotið skipun eða ráðningu“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: verið ráðinn.
b. Í stað orðsins „embættinu“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: prestsþjónustu.
17. gr.
a. Í stað orðanna „aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar en þá sem fyrr hafa verið taldir“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: starfsfólk þjóðkirkjunnar.
b. Í stað orðanna „hlutverk starfsmanna“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: réttarstöðu og hlutverk starfsfólks.
c. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Kirkjuþing setur gjaldskrá um þjónustu kirkjunnar, þ.m.t. vegna prestsþjónustu.
18. gr.
19. gr.
Um það starfsfólk þjóðkirkjunnar sem tilgreint var í 1. mgr. 61. gr. laganna og var í starfi 31. desember 2019 gilda ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, eins og við getur átt, til og með 31. mars 2020.
Það starfsfólk þjóðkirkjunnar sem var skipað í embætti í skilningi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, við gildistöku laga þessara heldur þeim réttindum og skyldum sem af skipuninni leiðir út skipunartíma sinn, en að öðru leyti fer um réttindi þess og skyldur samkvæmt starfsreglum settum af kirkjuþingi.
Gjaldskrá um greiðslur fyrir aukaverk presta þjóðkirkjunnar nr. 729/2014, með síðari breytingum, sem sett var með heimild í 3. gr. laga um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra, nr. 36/1931, með síðari breytingum, og var birt í B-deild Stjórnartíðinda, skal halda gildi sínu til 31. mars 2020.
II. KAFLI
Breyting á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum.
20. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum.
21. gr.
Þeir starfsmenn þjóðkirkjunnar sem eiga aðild að B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins eiga rétt til áframhaldandi aðildar að sjóðnum með óslitinni réttindaávinnslu meðan þeir gegna störfum hjá þjóðkirkjunni.
22. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um laun sóknarpresta, nr. 46/1907, og lög um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra, nr. 36/1931.