Ferill 781. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1185  —  781. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um niðurstöður PISA-kannana.

Frá Óla Birni Kárasyni.


    Hverjar voru niðurstöður PISA-kannana árin 2009–2018 niðurgreindar á hvern grunnskóla:
     1.      í lesskilningi,
     2.      í læsi á stærðfræði,
     3.      í læsi á náttúruvísindi?


Skriflegt svar óskast.