Ferill 825. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1270 — 825. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um lögbundna þjónustu sveitarfélaga í skólum fyrir einhverf börn og önnur fötluð börn.
Frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
1. Hvaða skylda hvílir á sveitarfélögum til að styðja sérstaklega við einhverf börn á skólagöngu þeirra og hvernig eiga sveitarfélög að framkvæma þá skyldu?
2. Hvernig er velferð einhverfra barna og annarra fatlaðra barna tryggð í skólum með lögbundinni þjónustu sveitarfélaga?
3. Hvernig fylgir ráðuneytið því eftir að þessi þjónusta sé hnökralaus, að hagur barnsins sé í fyrirrúmi og að komið sé til móts við barnið?
Skriflegt svar óskast.