Guðni Ágústsson:
Hæstv. forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. v. Jón Sæmundur Sigurjónsson hefur kannski misskilið mína meiningu hér áðan því að ég spurði sérstaklega eftir því hvort vinir mínir í Alþfl. væru með þessari till. Ég sagði að allir alvörustjórnmálaflokkar væru þarna með nema Alþfl. og mér datt í hug hvort þarna hefði það nú gerst að Alþfl. hefði aðra skoðun í þessu máli. En nú hefur hann komið fram og lýst yfir stuðningi við till. og boðað reyndar á ný tillögu sem ég þekki gjörla og að hún verði flutt hér í þinginu. Ég vildi láta það koma fram að ég var ekki að sneiða að Alþfl. Ég harmaði aðeins að enginn af þeirra myndarlegu fulltrúum voru flutningsmenn till.