Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 122 . mál.


Sþ.

128. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um lög um bann við ofbeldiskvikmyndum og lög um vernd barna og unglinga.

Frá Guðrúnu Agnarsdóttur og Danfríði Skarphéðinsdóttur.



1.     Hvað líður störfum nefndar sem skipuð var 22. apríl 1987 til að endurskoða lög um bann við ofbeldiskvikmyndum, nr. 33/1983?
2.     Hvað líður heildarendurskoðun laga um vernd barna og ungmenna?
3.     Hyggst menntamálaráðherra flytja frumvarp til að samræma þessi lög að því er tekur til banns við ofbeldiskvikmyndum fyrir lok ársins 1988?