Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 567, 111. löggjafarþing 243. mál: verðlag, samkeppnishömlur og óréttmætir viðskiptahættir (Verðlagsráð, skýrslur og verðlagning orku).
Lög nr. 6 27. febrúar 1989.
Varamenn skulu skipaðir á sama hátt og um getur í 2. mgr. greinar þessarar. Heimilt er ráðherra að skipa 1. og 2. varamann í ráðið samkvæmt ósk þeirra aðila sem tilnefna menn í ráðið skv. 1. mgr. Taka varamenn þá sæti í ráðinu í þeirri röð. Ráðið er skipað til fjögurra ára í senn.
Hver sá, sem vanrækir að láta Verðlagsstofnun í té umbeðnar og nauðsynlegar skýrslur og gögn í sambandi við framkvæmd laga þessara, skal sæta viðurlögum skv. 52. gr.
2. mgr. 49. gr. laganna falli niður.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2. gr. skal verðlagning á orku frá orkuvinnslufyrirtækjum og dreifiveitum falla undir ákvæði laga þessara á tímabilinu frá 1. mars 1989 til 1. september 1989.
Þingskjal 567, 111. löggjafarþing 243. mál: verðlag, samkeppnishömlur og óréttmætir viðskiptahættir (Verðlagsráð, skýrslur og verðlagning orku).
Lög nr. 6 27. febrúar 1989.
Lög um breytingu á lögum nr. 56 16. maí 1978, um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti.
1. gr.
3. mgr. 3. gr. laganna orðist svo:Varamenn skulu skipaðir á sama hátt og um getur í 2. mgr. greinar þessarar. Heimilt er ráðherra að skipa 1. og 2. varamann í ráðið samkvæmt ósk þeirra aðila sem tilnefna menn í ráðið skv. 1. mgr. Taka varamenn þá sæti í ráðinu í þeirri röð. Ráðið er skipað til fjögurra ára í senn.
2. gr.
1. mgr. 49. gr. laganna orðist svo:Hver sá, sem vanrækir að láta Verðlagsstofnun í té umbeðnar og nauðsynlegar skýrslur og gögn í sambandi við framkvæmd laga þessara, skal sæta viðurlögum skv. 52. gr.
2. mgr. 49. gr. laganna falli niður.
3. gr.
Við lögin bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2. gr. skal verðlagning á orku frá orkuvinnslufyrirtækjum og dreifiveitum falla undir ákvæði laga þessara á tímabilinu frá 1. mars 1989 til 1. september 1989.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 23. febrúar 1989.