Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 627, 111. löggjafarþing 3. mál: viðskiptabankar og sparisjóðir (verðbréfafyrirtæki).
Lög nr. 15 22. mars 1989.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka.
Viðskiptabanka er heimilt þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar að starfrækja verðbréfafyrirtæki er starfar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
3. mgr. laganna verður 4. mgr. og orðast svo:
Að öðru leyti en um getur í þessari grein má viðskiptabanki ekki á neinn hátt bera ábyrgð sem þátttakandi eða meðeigandi í rekstri annarra félaga.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 87/1985, um sparisjóði.
Sparisjóði er heimilt þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar að starfrækja verðbréfafyrirtæki er starfar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
3. mgr. laganna verður 4. mgr. og orðast svo:
Að öðru leyti en um getur í þessari grein má sparisjóður ekki á neinn hátt bera ábyrgð sem þátttakandi eða meðeigandi í rekstri annarra félaga, sbr. þó 33. gr.
Þingskjal 627, 111. löggjafarþing 3. mál: viðskiptabankar og sparisjóðir (verðbréfafyrirtæki).
Lög nr. 15 22. mars 1989.
Lög um breytingu á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka, og breytingu á lögum nr. 87/1985, um sparisjóði.
1. gr.
Í 28. gr. laganna kemur ný málsgrein er verður 3. mgr.:Viðskiptabanka er heimilt þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar að starfrækja verðbréfafyrirtæki er starfar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
3. mgr. laganna verður 4. mgr. og orðast svo:
Að öðru leyti en um getur í þessari grein má viðskiptabanki ekki á neinn hátt bera ábyrgð sem þátttakandi eða meðeigandi í rekstri annarra félaga.
2. gr.
Í 32. gr. laganna kemur ný málsgrein er verður 3. mgr.:Sparisjóði er heimilt þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar að starfrækja verðbréfafyrirtæki er starfar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
3. mgr. laganna verður 4. mgr. og orðast svo:
Að öðru leyti en um getur í þessari grein má sparisjóður ekki á neinn hátt bera ábyrgð sem þátttakandi eða meðeigandi í rekstri annarra félaga, sbr. þó 33. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. mars 1989.