Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 103 . mál.
Nd.
686. Breytingartillögur
við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1989.
Frá landbúnaðarráðherra.
1. Við 28. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Þó er fjármálaráðherra heimilt, að höfðu samráði við landbúnaðarráðherra og fjárveitinganefnd Alþingis, að ganga frá uppgjöri og ákveða tilhögun greiðslna vegna ógreiddra framlaga ríkissjóðs til jarðræktarframkvæmda árið 1988 í tengslum við afgreiðslu nýrra laga um greiðsluskyldu ríkissjóðs vegna slíkra framkvæmda.
2. Við 29. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Þó er fjármálaráðherra heimilt, að höfðu samráði við landbúnaðarráðherra og fjárveitinganefnd Alþingis, að ganga frá uppgjöri og ákveða tilhögun greiðslna vegna ógreiddra framlaga ríkissjóðs til búfjárræktarframkvæmda árið 1988 í tengslum við afgreiðslu nýrra laga um greiðsluskyldu ríkissjóðs vegna búfjárræktar.