Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 163 . mál.


Nd.

1183. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 56/1972, um lögreglumenn, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið um það umsagnir frá Lögreglufélagi Reykjavíkur, lögreglustjóranum í Reykjavík og Sýslumannafélagi Íslands. Þá komu þeir Þorgrímur Guðmundsson, formaður Lögreglufélags Íslands, og Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, á fund nefndarinnar.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali. Breytingin felur í sér að það ákvæði frumvarpsins, er kveður á um að engan megi ráða eða skipa lögreglumann án þess að hann hafi lokið námi í Lögregluskóla ríkisins, taki ekki gildi fyrr en 1. júlí 1990, en í frumvarpinu hafði verið miðað við 1. janúar 1990. Tillaga nefndarinnar tekur mið af því að verið er að vinna að uppbyggingu skólans og þess vegna talið eðlilegt að hert ráðningarskilyrði taki ekki gildi fyrr en um mitt næsta ár.
    Sighvatur Björgvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. maí 1989.



Jón Kristjánsson,

Kristín Halldórsdóttir,

Geir Gunnarsson.


form., frsm.

fundaskr.



Guðni Ágústsson.

Valdimar Indriðason.

Kristinn Pétursson.