Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Frsm. 2. minni hl. sjútvn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1115 um frv. til laga um Úreldingarsjóð fiskiskipa. Það hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Þó að efni þessa frv. og brtt., sem ríkisstjórnin hefur lagt fram við það, sé í anda þess sem Kvennalistinn hefur látið frá sér fara um fiskveiðimál hefur 2. minni hl. ýmsar athugasemdir við efni frv. eftir að brtt. ríkisstjórnarinnar voru birtar og málsmeðferðina alla.
    Markmið frv. eins og það var lagt fram, var einkum þríþætt:
    1. að draga úr afkastagetu fiskiskipastólsins,
    2. að koma í veg fyrir að úrelt og gömul fiskiskip séu endurnýjuð með mun afkastameiri fiskiskipum,
    3. að sjóðurinn eignist kvóta fiskiskipa eftir ákveðnum reglum.
    Allt eru þetta markmið sem kvennalistakonur fella sig við og telja nauðsynlegt að vinna að.
    Með þeim brtt., sem lagðar hafa verið fram af hálfu ríkisstjórnarinnar við þetta frv., örlar á viðurkenningu á þeim sjónarmiðum sem kvennalistakonur hafa haldið fram og flutt tillögur um, að óhjákvæmilegt sé að taka tillit til byggðasjónarmiða við mótun fiskveiðistefnu og að ekki sé sjálfgefið að úthluta veiðiheimildum ókeypis til einstaklinga og útgerðarfélaga sem geta hagnast um tugi eða hundruð milljóna á óveiddum fiski sem lögum samkvæmt er sameign íslensku þjóðarinnar. Brtt. fela þó ekki í sér framtíðarlausn á vanda byggðarlaga, aðeins er verið að lagfæra einstök atriði en heildarvandanum ýtt til hliðar og ýmis atriði óljós. Með brtt. er búið að tengja frv. þetta frv. til laga um fiskveiðistefnu órjúfanlegum böndum, fyrst og fremst í því skyni að reyna að jafna ágreining innan ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistefnuna.
    Annar minni hl. telur þetta ekki vera það úrræði sem þarf til að tryggja stöðu byggðarlaga og minnir á brtt. Kvennalistans við frv. til laga um stjórn fiskveiða um byggðakvóta. Hins vegar kann að vera að þetta sé eina úrræði ríkisstjórnarinnar til að þoka frv. til laga um fiskveiðistefnu í gegnum þingið. Í ljósi þessa og þeirrar staðreyndar að frv. þetta er mikilvægur þáttur þeirrar fiskveiðistefnu, sem Kvennalistinn hefur hafnað, leggur 2. minni hl. til að frv. verði fellt.
    Alþingi, 30. apríl 1990. Danfríður Skarphéðinsdóttir.``
    Virðulegur forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta frv. Ég fjallaði hér ítarlega um fiskveiðistefnuna fyrr í dag og flutti brtt. Kvennalistans við frv. til laga um stjórn fiskveiða. Þetta mál er nátengt því og þar sem við getum ekki stutt frv. ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistefnu þá kemur auðvitað heldur ekki til greina að styðja það sem hér liggur fyrir þar sem búið er að tengja þessi tvö mál algerlega órjúfanlegum böndum.