Ferill 134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 134 . mál.
Sþ.
138. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um sérstakan eignarskatt.
Frá Hreggviði Jónssyni.
1. Hvernig skiptist álagður sérstakur eignarskattur árið 1989 samkvæmt ákvæðum laga nr. 49/1986, um þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu, milli einstakra kjördæma?
2. Hvernig skiptist álagning þeirra í hverju kjördæmi fyrir sig milli:
A. fyrirtækja,
B. einstaklinga:
a. hjóna,
b. einhleypinga?
Einnig er beðið um upplýsingar um fjölda í hverjum hópi fyrir sig.
3. Hve há upphæð var innheimt í allt árin 1986, 1987, 1988 og 1989 og hve stór hluti hennar rann til byggingar Þjóðarbókhlöðunnar?
Skriflegt svar óskast.