Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 176 . mál.
Sþ.
199. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um áætlaðan risnu- og ferðakostnað ráðuneyta og ríkisfyrirtækja árið 1990.
Frá Inga Birni Albertssyni.
1. Hver er áætlaður risnukostnaður ráðuneyta annars vegar og ríkisfyrirtækja hins vegar á árinu 1990?
2. Hver er áætlaður ferðakostnaður ráðuneyta annars vegar og fyrirtækja í ríkiseign hins vegar á árinu 1990? Hvernig skiptist áætlunin milli ferðakostnaðar innan lands og kostnaðar við utanlandsferðir? Hvað er gert ráð fyrir mörgum utanlandsferðum?
Skriflegt svar óskast.