Ferill 134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 134 . mál.
Sþ.
226. Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Hreggviðs Jónssonar um sérstakan eignarskatt.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvernig skiptist álagður sérstakur eignarskattur 1989 samkvæmt ákvæðum laga nr. 49/1986, um þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu, milli einstakra kjördæma?
2. Hvernig skiptist álagning þeirra í hverju kjördæmi fyrir sig milli:
A. fyrirtækja,
B. einstaklinga:
a. hjóna,
b. einhleypinga?
Einnig er beðið um upplýsingar um fjölda í hverjum hópi fyrir sig.
3. Hve há upphæð var innheimt í allt árin 1986, 1987, 1988 og 1989 og hve stór hluti hennar rann til byggingar Þjóðarbókhlöðunnar?
Til svars fyrirspurninni hafa verið teknar saman eftirfarandi upplýsingar:
1. Sérstakur eignarskattur. Kr.
Reykjavík .......................... 161.120.860
Reykjaneskjördæmi .................. 64.244.606
Vesturlandskjördæmi ................ 9.694.466
Vestfjarðakjördæmi ................. 5.852.810
Norðurlandskjördæmi vestra ......... 5.565.387
Norðurlandskjördæmi eystra ......... 18.458.737
Austurlandskjördæmi ................ 5.049.971
Suðurlandskjördæmi ................. 14.485.458
Samtals 284.472.295
2. Sérstakur eignarskattur.
Reykjavíkurkjördæmi: Fjárhæð Fjöldi
A. Lögaðilar ............... 103.921.932 2.465
B. Menn .................... 57.198.928 8.237
a. Hjón ................. 39.939.954 5.952
b. Einhleypingar ........ 17.258.974 2.285
Reykjaneskjördæmi:
A. Lögaðilar ............... 32.086.641 734
B. Menn .................... 32.157.965 5.072
a. Hjón ................. 25.478.679 4.235
b. Einhleypingar ........ 6.679.286 837
Vesturlandskjördæmi:
A. Lögaðilar ............... 6.315.107 260
B. Menn .................... 3.379.359 514
a. Hjón ................. 2.517.552 349
b. Einhleypingar ........ 861.807 165
Vestfjarðakjördæmi:
A. Lögaðilar ............... 4.904.118 290
B. Menn .................... 948.692 213
a. Hjón ................. 636.255 133
b. Einhleypingar ........ 312.437 80
Norðurlandskjördæmi vestra:
A. Lögaðilar ............... 3.510.174 167
B. Menn .................... 2.055.213 428
a. Hjón ................. 1.395.318 309
b. Einhleypingar ........ 659.895 119
Norðurlandskjördæmi eystra:
A. Lögaðilar ............... 15.068.327 465
B. Menn .................... 3.390.410 736
a. Hjón ................. 2.337.500 540
b. Einhleypingar ........ 1.052.910 196
Austurlandskjördæmi:
A. Lögaðilar ............... 3.831.749 217
B. Menn .................... 1.218.222 262
a. Hjón ................. 681.703 156
b. Einhleypingar ........ 536.519 106
Suðurlandskjördæmi:
A. Lögaðilar ............... 9.453.552 343
B. Menn .................... 5.031.906 1.012
a. Hjón ................. 3.550.345 762
b. Einhleypingar ........ 1.481.561 250
3. Innheimta 1986–1989.
Innheimta 1) Ráðstafað til
Þjóðarbókhlöðu
Kr. Kr.
Árið 1987 ....... 125.773.309 74.014.086
Árið 1988 ....... 154.783.083 49.999.285
Árið 1989 ....... 164.578.347 2) 82.440.347 3)
Samtals 445.134.739 206.453.718
Til athugunar:
1) Eignarskattsauki var lagður á eignarskattsstofn gjaldárin 1985 og 1986. Hann rann í ríkissjóð og átti að ráðstafa honum til húsnæðismála.
Sérstakur eignarskattur var lagður á gjaldárin 1987, 1988 og 1989 er átti að renna til byggingar Þjóðarbókhlöðu.
2) Innheimta 1. jan. til 31. okt.
3) Framlag 1. jan. til 31. okt.