Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 208 . mál.
Nd.
388. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
1. Við 1. gr. Á eftir orðinu „ökukennsla“ í c-lið bætist við orðin: flugkennsla og danskennsla.
2. Við 6. gr. Á eftir a-lið komi nýr stafliður er orðist svo: 8. tölul. 1. mgr. falli brott.
3. Við 13. gr. a-lið (ný 42. gr.).
a. Í stað orðsins „þriggja“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: tveggja.
b. Á eftir orðinu „endurgreiða“ í 3. mgr. komi: ríkisstofnunum, ríkisfyrirtækjum og.