Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 30 . mál.
382. Breytingartillaga
við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1992.
Frá Jóni Kristjánssyni, Halldóri Ásgrímssyni, Jóni Helgasyni,
Guðna Ágústssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni.
Á eftir 5. gr. komi ný grein er orðist svo:
Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast lán, allt að 300 m.kr., til að greiða fyrir síldarviðskiptum við Rússland.