Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er auðvitað algerlega út í hött að það sé lögbrot að leggja vegáætlun fyrir með þeim hætti sem hér hefur verið gert. Þessu er margsvarað hér í ræðustól, hefur verið gert af öllum ráðherrum á öllum tímum að flytja þáltill. og frumvörp í samræmi við venjur og að fengnu samþykki innan ríkisstjórnar. En það er auðvitað alveg út í hött að það sé lögbrot.