Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 426 . mál.
835. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 9/1970, um Iðnþróunarsjóð.
(Eftir 2. umr., 24. febr.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:
Iðnþróunarsjóður er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins. Hann lýtur sérstakri stjórn samkvæmt lögum þessum.
Ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum Iðnþróunarsjóðs.
Heimili og varnarþing Iðnþróunarsjóðs er í Reykjavík. Seðlabanki Íslands veitir sjóðnum nauðsynlega fyrirgreiðslu og starfsaðstöðu.
2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:
Hlutverk Iðnþróunarsjóðs er að stuðla að uppbyggingu alhliða og samkeppnishæfs atvinnu
Iðnþróunarsjóður gegnir hlutverki sínu með því:
1 . að veita lán til ákveðinna verkefna, annaðhvort einn eða í samvinnu við aðra aðila,
2 . að ábyrgjast lán sem veitt eru af öðrum aðilum,
3 . að kaupa hlutabréf í nýjum og starfandi fyrirtækjum, enda verði að því stefnt að selja hlutabréfin strax og aðstæður leyfa og hagkvæmt þykir,
4 . að veita áhættulán til vöruþróunar og markaðstarfsemi og taka þátt í kostnaði við skilgreind þróunarverkefni í samræmi við hlutverk sjóðsins.
Til verkefna skv. 3. og 4. tölul. 2. mgr. má Iðnþróunarsjóður ekki verja hærri fjárhæð en nemur allt að 10% af eigin fé í árslok 1994.
3. gr.
3. gr. laganna orðast svo:
Iðnþróunarsjóði er óheimilt að taka önnur lán en skammtímalán til að jafna sveiflur í greiðslustreymi sínu. Skammtímalán þessi má sjóðurinn ekki taka með útgáfu og sölu á skulda
4. gr.
4. gr. laganna orðast svo:
Iðnaðarráðherra skipar þrjá menn í stjórn Iðnþróunarsjóðs og skal einn þeirra skipaður for
Stjórn Iðnþróunarsjóðs hefur yfirumsjón með starfsemi sjóðsins og fer með allt vald í mál
Stjórn Iðnþróunarsjóðs ákveður áherslur í starfi sjóðsins í samræmi við ákvæði 2. gr. og setur reglur um skilyrði fyrir þátttöku sjóðsins í verkefnum, um umsóknir þar að lútandi og um meðferð þeirra. Þess skal gætt að reglur um meðferð umsókna tryggi sem best óháða og faglega um
5. gr.
5. gr. laganna orðast svo:
Stjórn Iðnþróunarsjóðs ræður honum framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri fer með daglega stjórn sjóðsins í umboði stjórnar hans og ræður starfsfólk sjóðsins.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 9. mars 1995. Jafnframt fellur brott fylgiskjal með lögum nr. 9/1970, um Iðnþróunarsjóð.
Lög nr. 9/1970 skulu endurskoðuð fyrir 1. maí 1996.