Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég tel þennan efa í huga hv. þm. jákvæðan, betra en ef svar hefði fallið hér á þann veg að þingmaðurinn teldi eðlilegt að selja aðgang að sýnunum. En ég fékk ekkert svar við upplýsingunum og sölu upplýsinga sem unnar væru á grundvelli sýnanna sem væru þó á sínum stað í lífsýnasafninu. Ef upplýsingarnar væru komnar inn í tölvubanka, er þingmaðurinn þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að selja slíkar upplýsingar?