Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það er vissulega góðra gjalda vert að loks skuli léð máls á að funda um málið. Ég vildi benda hæstv. forseta á að ég held að það sé alveg einsdæmi að óbein skilaboð um viðbrögð formanna þingflokka komi í gegnum hæstv. forseta en þau séu ekki mælt af ræðustóli. Mér finnst a.m.k. lágmark að formenn þingflokka stjórnarflokkanna hafi fyrir því að koma í stólinn til þess að ræða við þingmenn og hæstv. forseta.