Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 59 — 59. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um gagnagrunn á heilbrigðissviði og samkeppnisreglur.
Frá Hjörleifi Guttormssyni.
1. Hefur ráðherra hlutast til um, eða hefur áform um, að afla álits Eftirlitsstofnunar EFTA á því hvort hugmyndir heilbrigðisráðuneytisins um gagnagrunn á heilbrigðissviði og veitingu rekstrarleyfis til eins aðila fari í bága við samkeppnisreglur EES, reglur um útboð og reglur um ríkisaðstoð?
2. Hafi álits þegar verið leitað hjá Eftirlitsstofnun EFTA, hver eru þá viðbrögð stofnunarinnar?