Ferill 31. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 31  —  31. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve mörg af 20 kvótahæstu útgerðarfyrirtækjunum greiddu skatt á síðasta ári, sundurliðað eftir tekju-, eigna- og fjármagnstekjuskatti vegna áranna 1998 og 1999?
     2.      Hver var hagnaður eða tap þessara fyrirtækja á þessum árum, sundurliðað eftir árum, og hve háar voru bókfærðar eignir þeirra?


Skriflegt svar óskast.