Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 670, 128. löggjafarþing 183. mál: innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (tryggingatími).
Lög nr. 139 18. desember 2002.
Þingskjal 670, 128. löggjafarþing 183. mál: innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (tryggingatími).
Lög nr. 139 18. desember 2002.
Lög um breytingu á lögum nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Skuldbindingar sem stofnað er til áður en leyfi er afturkallað skulu njóta tryggingaverndar í samræmi við ákvæði III. kafla.
- 3. málsl. 4. mgr. orðast svo: Skuldbindingar sem stofnað er til áður en útibú er útilokað frá aðild að sjóðnum skulu njóta tryggingaverndar í samræmi við ákvæði III. kafla.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. desember 2002.