Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 353. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 406  —  353. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um virðisaukaskatt af lyfseðilsskyldum lyfjum.

Frá Pétri Bjarnasyni.



     1.      Hver var upphæð virðisaukaskatts til ríkissjóðs af lyfseðilsskyldum lyfjum árið 2003?
     2.      Hver var virðisaukaskattur af kaupum stofnana ríkisins á lyfseðilsskyldum lyfjum árið 2003?
     3.      Hver var heildarupphæð endurgreiðslu virðisaukaskatts af lyfseðilsskyldum lyfjum árið 2003?


Skriflegt svar óskast.