135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 883 — 325. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 7. apríl.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.
1. gr.
a. Á eftir orðinu „hlutabréfa“ í 1. mgr. kemur: og afleiðusamninga sem seldir eru á skipulegum verðbréfamörkuðum, þar sem undirliggjandi verðmæti eru eingöngu hlutabréf.
b. Á eftir orðinu „hlutabréfa“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og afleiðusamninga sem seldir eru á skipulegum verðbréfamörkuðum, þar sem undirliggjandi verðmæti eru eingöngu hlutabréf.
c. 5. mgr. fellur brott.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 31. gr. laganna:a. 1. og 3. mgr. 5. tölul. falla brott.
b. Við 4. málsl. 9. tölul. bætist: eða aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.
c. Á eftir 9. tölul. kemur nýr töluliður er verður 9. tölul. a, svohljóðandi: Hagnað af sölu hlutabréfa og afleiðusamninga sem seldir eru á skipulegum verðbréfamarkaði, þar sem undirliggjandi verðmæti eru eingöngu hlutabréf, samkvæmt lögum þessum hjá félögum sem falla undir 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. af hlutabréfum í félögum er greinir í 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. Sama gildir um hagnað sem félög í sömu félagaformum sem eru skattskyld skv. 7. tölul. 3. gr. og eru heimilisföst í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu hafa fengið af sölu hlutabréfa. Ákvæði þessa töluliðar tekur einnig til hagnaðar af sölu hlutabréfa í félögum sem skráð eru erlendis ef seljandi sýnir fram á að hagnaður af starfsemi hins erlenda félags hafi verið skattlagður með sambærilegum hætti og gert er hér á landi. Frádráttur skv. 3. málsl. er bundinn því skilyrði að það skatthlutfall sem lagt er á hagnað hins erlenda félags sé eigi lægra en almennt skatthlutfall í einhverju aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París (OECD), aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.
Tap umfram hagnað af sölu hlutabréfa og afleiðusamninga sem seldir eru á skipulegum verðbréfamarkaði, þar sem undirliggjandi verðmæti eru eingöngu hlutabréf, heimilast ekki sem frádráttur frá tekjum og myndar ekki yfirfæranlegt tap.
Frádráttur samkvæmt þessum tölulið er því aðeins heimill að yfirfæranlegt rekstrartap hafi verið jafnað, þar með talið tap sem myndast hefur á tekjuárinu.
Fjármálaráðherra skal setja nánari reglur um framkvæmd þessara ákvæða.
3. gr.
Á eftir 4. mgr. 89. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 2.–4. mgr. skal álagning, eftirlit og önnur skattaumsýsla lögaðila skv. 2. og 3. gr. heyra undir Reykjavíkurumdæmi sé annað eða bæði eftirfarandi skilyrða uppfyllt:
a. rekstrartekjur lögaðila samkvæmt síðasta ársreikningi, að viðbættum fjármagnstekjum, eru 10 milljarðar kr. eða hærri. Móður- og dótturfélög þess lögaðila skulu einnig heyra undir Reykjavíkurumdæmi séu þau skattskyld hér á landi,
b. heildareignir lögaðila samkvæmt síðasta ársreikningi eru 5 milljarðar kr. eða hærri. Móður- og dótturfélög þess lögaðila skulu einnig heyra undir Reykjavíkurumdæmi séu þau skattskyld hér á landi.
Skattaumsýsla þeirra lögaðila sem kveðið er á um í 5. mgr. skal að jafnaði eigi vara skemur en tvö ár frá því að framangreind skilyrði eru uppfyllt.
Fyrir lok hvers árs skal ríkisskattstjóri tilkynna þeim lögaðilum sem falla undir skilyrði a- eða b-liðar 5. mgr. að skattaumsýsla þeirra heyri undir Reykjavíkurumdæmi. Ríkisskattstjóra er jafnframt heimilt að beiðni skattstjóra eða ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi að fella lögaðila undir 5. mgr. eða fella lögaðila undan henni enda tilkynni hann viðkomandi lögaðilum þá ákvörðun sína. Í reglugerð sem ráðherra setur skal nánar kveðið á um fyrirkomulag skattaumsýslu þeirra lögaðila sem falla undir 5. mgr.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda,
með síðari breytingum.
4. gr.
Eftirlit samkvæmt ákvæðum 21. gr. og önnur skattaumsýsla þeirra lögaðila sem falla undir 5. mgr. 89. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal heyra undir Reykjavíkurumdæmi.
III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
5. gr.
Álagning, eftirlit og önnur skattaumsýsla þeirra lögaðila sem falla undir 5. mgr. 89. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal heyra undir Reykjavíkurumdæmi.
IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur,
með síðari breytingum.
6. gr.
Álagning, eftirlit og önnur skattaumsýsla þeirra lögaðila sem falla undir 5. mgr. 89. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal heyra undir Reykjavíkurumdæmi.
V. KAFLI
Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
7. gr.
Skráning, álagning, eftirlit og önnur virðisaukaskattsumsýsla þeirra lögaðila sem falla undir 5. mgr. 89. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal heyra undir Reykjavíkurumdæmi.
8. gr.
Við a-lið viðauka við lögin bætist: 0401.1009, 0401.2009 og 0401.3009.VI. KAFLI
Gildistaka.
9. gr.
Ákvæði 3.–7. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2009.
Ákvæði 8. gr. öðlast gildi 1. janúar 2008.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.