Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.

Þskj. 136  —  126. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um jafnræði kynja í ríkisbönkum.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



     1.      Hver ber ábyrgð á því að jafnræðis sé gætt milli kynja við skipulagsbreytingar í nýju ríkisbönkunum þremur?
     2.      Hvert var kynjahlutfall meðal stjórnenda bankanna þriggja fyrir yfirtöku ríkisins og hvert er það nú?
     3.      Hvernig hefur ráðherra beitt sér til að tryggja að jafnræðis sé gætt milli kynja í nýju bönkunum hvað varðar stöðuveitingar og launakjör?