Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1225  —  633. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um umsókn um aðild að Evrópusambandinu.

     1.      Hvaða vinnuhópar, ef einhverjir eru, innan ráðuneytisins eða undirstofnana þess fjalla um málefni tengd umsókn um aðild að Evrópusambandinu?
    Innan ráðuneytisins eða stofnana þess eru ekki starfandi vinnuhópar sem fjalla sérstaklega um málefni tengd umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hins vegar eiga starfsmenn ráðuneytisins aðild að vinnuhópum á vegum utanríkisráðuneytisins sem vinna að undirbúningi málsins.

     2.      Hversu margir starfsmenn má ætla að vinni að aðildarumsókninni innan ráðuneytisins og undirstofnana þess og hversu hátt hlutfall er það af heildarstarfsmannafjölda?
    Fjórir starfsmenn ráðuneytisins vinna að málefnum sem tengjast aðildarumsókn meðfram öðrum störfum sínum og þrír starfsmenn eiga sæti í samningahópum sem settir hafa verið á fót vegna undirbúnings fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Gera má ráð fyrir að sá hluti vinnu þeirra sem varðar undirbúning vegna aðildarumsóknar samsvari hingað til gróflega áætlað um einu stöðugildi. Af hálfu Umhverfisstofnunar hefur tuttugu og einn starfsmaður tekið þátt í þessari vinnu og hafa verið unnir 650 tímar frá áramótum vegna þessa verkefnis. Hjá Náttúrufræðistofnun Íslands hafa fimm starfsmenn komið að vinnunni en einn starfsmaður aðallega sinnt þessu verkefni og samsvarar vinnuframlag hans 0,25% af heildarstarfi á stofnuninni á mánuði. Hjá Skógrækt ríkisins hafa tveir starfsmenn unnið að þessu verkefni og hafa verið unnir um 100 tímar vegna verkefnisins og hjá Landgræðslu ríkisins hefur einn starfsmaður unnið að verkefninu og er vinnuframlag hans um 80 tímar.

     3.      Hvað er áætlað að ráðuneytið og undirstofnanir þess verji miklu fé, á þessu ári og því næsta, til vinnu vegna aðildarumsóknarinnar?
    Ekki er gert ráð fyrir nýjum fjárútlátum af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess vegna aðildarumsóknarinnar heldur mun þetta starf taka tíma frá annarri starfsemi ráðuneytisins og viðkomandi stofnana.

     4.      Hefur starfsmönnum í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess verið fjölgað vegna aðildarumsóknarinnar og ef svo er, hve mörg stöðugildi er um að ræða?
    Engar breytingar hafa orðið í starfsmannahaldi ráðuneytisins vegna aðildarumsóknarinnar.

     5.      Hefur ráðuneytið keypt einhverja utanaðkomandi ráðgjöf vegna aðildarumsóknarinnar og ef svo er, af hverjum var sú ráðgjöf keypt og hversu mikill var kostnaðurinn við það?
    Ráðuneytið hefur ekki keypt neina utanaðkomandi ráðgjöf vegna aðildarumsóknarinnar en ráðuneytið keypti þjónustu við þýðingar af löggiltum dómtúlki og skjalaþýðanda og var kostnaður við það um 1 millj. kr.

     6.      Liggur fyrir hvaða skipulagsbreytingar á stjórnsýslu þeirri sem undir ráðuneytið heyrir þurfa að vera komnar til framkvæmda áður en til aðildar kemur til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins? Óskað er eftir upplýsingum um breytingar sem eru fyrirsjáanlegar þrátt fyrir að heildarumfang þeirra liggi ekki fyrir.
    Ráðuneytið telur að engar skipulagsbreytingar á stjórnsýslu sem heyrir undir ráðuneytið þurfi að vera komnar til framkvæmda áður en til hugsanlegrar aðildar kemur.