Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 650. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1388  —  650. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um stofnun opinbers hlutafélags um vegaframkvæmdir.

Frá Birni Val Gíslasyni.



     1.      Við 1. gr. bætist þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Hlutafé félagsins við stofnun er 20 millj. kr. sem greiðast úr ríkissjóði. Við stofnun félagsins er allt hlutafé þess í eigu íslenska ríkisins og er sala þess og ráðstöfun óheimil.
                  Fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu.
                  Ákvæði laga um hlutafélög gilda um félagið ef ekki er kveðið á um annað í lögum þessum.
     2.      4. gr. falli brott.