Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 256. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 593  —  256. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, með síðari breytingum.

Frá Árna Johnsen.



    Við 34. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi:
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði laga þessara skal Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vera heimilt að gera þjónustusamning við Sólheima ses. í samræmi við 6. gr. b laganna eftir því sem við á. Slíkur samningur skal ekki gilda lengur en til ársloka 2014 og fer Jöfnunarsjóðurinn með hlutverk sveitarfélaga samkvæmt lögum þessum eftir því sem við á, m.a. er varðar eftirlit með gæðum þjónustu og kostnaði vegna hennar.